|Heim| |Fyrirtækið| |Verk| |Vélar| |Staðsetning| |Önnur þjónusta|

____________________________________________________________________________________________________

Vélaþjónustan Hálstak

 

  

 Húsið okkar

Niðurrif á bústað

Niðursetning bryggju

Ýmsir flutningar

Timburflutningar

Húsið á hæðinni

Þannig var mál með vexti að það varð til lítil fjölskylda á Hálsum. Þá vantaði okkur hús til að búa í og þótti okkur afar notalegt að vera í sveitasælunni. Við skoðuðum ýmislegt en einn góðan sunnudagsmorgun flettum við í gengum morgunblaðið og sáum þar 150 m3 hús til sölu, til flutnings. Og auðvitað var þetta eitthvað sem heillaði okkur ævintýrafólkið og strax eftir vinnu á mánudeginum var brunað suður í Hafnarfjörðinn þar sem húsið var staðsett og skoðað. Eigendur hússins voru reyndar í útlöndum þannig að við gátum bara kíkt á glugga.

Okkur leist aldeilis vel á þetta og fórum heim og ræddum þetta við okkar nánustu og það var ákveðið að við myndum skella okkur á þetta. Því næst var farið í bæinn og skrifað undir samninginn 31 Júlí 2006, en það má segja að það hafi verið tvítugs afmælisgjöf húsfreyjunnar því hún varð einmitt 20 ára þennan dag. Við vorum svo heppin að það var nóg af smiðum í bakhöndinni og við fengum þá með okkur suður til að rífa nýja húsið okkar í tætlur og standsetja það til flutnings því við höfðum bara mánuð til að fjarlægja húsið.

Það var svo 29 ágúst 2006 sem húsið var tekið af grunninum sínum og flutt "til geymslu" á hlaðið á Hálsum. Þá var beðið eftir að fá leyfi fyrir nýjum grunni undir húsið og þess háttar. Það leyfi kom loks í byrjun desember 2006 og þá var ekki seinna vænna en að byrja á þessu öllu saman. Auðvitað var það Tryggvi og litli vélamaðurinn okkar sem grófu allt sem þurfti að grafa og unnu alla jarðvinnuna. Það var svo 5 maí 2007 sem grunnurinn var tilbúinn og húsið var flutt á sinn stað. Við unnum allt sumarið í húsinu, að mestu leyti sjálf, með aðstoð nokkurra. Þar sem Tryggvi, eigandi hússins, vill hafa allt 100% tilbúið þá var flutt inní húsið alveg fullklárað 15 september. Annars var unnið þarna dag og nótt fyrir utan tvær helgar sem teknar voru í "sumarfrí"

Þetta ævintýri okkar gekk alveg ljómandi vel og það var ekkert sem fór úrskeiðis.

Verið velkomin í heimsókn til okkar, tökum vel á móti öllum.

Myndir af húsinu okkar.

 

 

Tryggvi Valur Sæmundsson | Hálsum 5, Skorradalur | 311 Borgarnes | kt.030286-2789 | Vsk nr. 92623 | S. 869-2900 & 437-1986 | halstak@halstak.is