Fyrirtækið
Þetta fyrirtæki var stofnað árið 2006. Þá hafði Tryggvi Valur Sæmundsson unnið hjá Trésmiðju Pálma í nokkuð mörg ár og séð þá aðallega um vélalega hlutann hjá fyrirtækinu. Þegar vinnan fór að aukast tók ákvað Tryggvi að taka þetta að sér og stofna sitt fyrirtæki. Fyrirtækið er reyndar rekið á hans nafni en ákveðið var að láta fyrirtækið heita Hálstak.Þar sem annar maður á það nafn þá ákváðum við að hafa það þá bara Vélaþjónustuna Hálstak. Núna rekum við þetta litla fjölskyldan saman og gerum okkar lang besta til að sinna öllum þeim verkum sem við fáum.
Eins og fram hefur komið þá tökum við að okkur ALLA almenna jarðvinnu og svo miklu meira en það. Við erum komin með þjónustusamning við sumarhúsafélagið í Dagverðanesi og sjáum alfarið um vinnu í Hálsaskógi.
Einnig bjóðum við uppá snjómokstur og margt fleira fyrir sumarhúsaeigendur í Skorradalshrepp.
Ekki hika við að hafa samband ef ykkur vantar eitthvað. Eins og ég segi þá tökum við nánast hvað sem er að okkur ;)
**Tryggvi Valur Sæmundsson - 8692900 - 4371986**
|